Ein heitasta hljómsveit heims er væntanleg til Íslands 27. ágúst og heldur stórtónleika í Höllinni. Hljómsveitina skipa bræðurnir Swae Lee og Slim Jimmy sem eiga nokkuð langan feril að baki þrátt fyrir ungan aldur. Bræðurnir, sem eru rétt um tvítugt, ólust upp í Tupelo sem er eitt versta fátækrahverfið í Missisippi. Árum saman bjuggu þeir á götunni og neyddust til að leita skjóls í yfirgefnum húsum, en unnu hörðum höndum að tónlistinni þrátt fyrir kröpp kjör.
Með einstaka hæfileika, staðfestu og tröllatrú á sjálfum sér í farteskinu keyrðu þeir bræður á milli staða til að koma tónlistinni til eyrna hlustenda og bjuggu í bílnum sínum á meðan.
Árið 2013 snerist gæfan þeim í vil þegar þeir hófu að gefa út tónlistina sína á Youtube. Lögin "No Type" og "No Flex Zone" slógu í gegn og þeir skutust upp á stjörnuhimininn á mettíma. Það fyrrnefnda er komið með tæplega 180 milljónir spilana á Youtube og tæplega 60 milljónir á Spotify.
Vinsældir hljómsveitarinnar eru á örskömmum tíma orðnar slíkar að nýjasta lag þeirra "Thro Sum Mo", sem skartar stórstjörnunni Nicki Minaj, þaut strax á topp 10 lista hér um bil allra útvarpsstöðva í Bandaríkjunum.
Það er ekki ekki á hverjum degi sem jafn sjóðandi heitir listamenn heimsækja klakann og því má búast við magnaðri stemningu í Höllinni fimmtudaginn 27. ágúst. Að auki verður sérstaklega glæsilegt úrval af íslenskum tónlistarmönnum fengnir til að koma fram á þessari miklu tónlistarveislu. Verður það tilkynnt nánar innar skamms.
Ráðgert er að hefja miðasölu eftir um tvær vikur og verður fyrirkomulag hennar einnig kynnt innan skamms.
Vinsamlegast athugið
Ekkert aldurstakmark verður á tónleikana.