Heiðurstónleikar The BEATLES í Háskólabíói laugardaginn 15. ágúst 2015
Það er ekki seinna vænna í öllu heiðurstónleikaflóðinu sem íslendingar hafa svo sannarlega tekið opnum örmum en að heiðra eina merkustu sveit allra tíma The BEATLES.
Það er sannarlega líka tilefni til því um þessar mundir er liðin um hálf öld frá því að fjórmenningarnir frægu komu fram á sjónarsviðið og breyttu tónlistar- og veraldarsögunni þar með.
Fjórmenningarnir sem stíga á svið í Háskólabíói eru heldur engir aukvisar og fara þar nokkrir af öflugustu söngvurum þjóðarinnar, þeir BJÖRGVIN HALLDÓRSSSON, MATTHÍAS MATTHÍASSON, STEFÁN JAKOBSSON & EIRÍKUR HAUKSSON.
ROKKABILLÝBANDIÐ leikur undir af sinni alkunnu snilld enda þar valin maður í hverju rúmi og sveitin skipuð eftirtöldum:
Tómas Tómasson gítar
Jón Elvar Hafsteinsson gítar
Ingi Björn Ingason bassi
Ingólfur Sigurðsson trommur
Haraldur Vignir Sveinbjörnsson hljómborð&gítar
Emil Guðmundsson ásláttur
Þessi glæsilegi hópur mun stíga á svið í Háskólabíói og flytja allar helstu perlur The BEATLES og gera þeim skil á sinn einstaka hátt. Þetta er kjörið tækifæri fyrir Bítlaaðdáendur á öllum aldri að upplifa og njóta þessarar snilldar í flutningi okkar færustu listamanna og konfekt fyrir bæði augu og eyru.