Eftir fantagóða stórtónleika í Háskólabíó nýlega mun Guns & Roses heiðurssveitin koma norður og rokka á Græna Hattinum fös.29.maí, í tilefni af 30 ára starfsafmæli sveitarinnar. Meistarastykkið Appetite For Destruction verður leikin í heild sinni ásamt rjómanum af bestu lögum Guns & Roses. Þetta er viðburður sem enginn rokkunnandi má missa af. Síðast komust færri að en vildu.
Heiðurssveitin:
Söngur – Stefán Jakobsson
Gítar – Franz Gunnarsson
Gítar – Andri Ívarsson
Trommur – Kristinn Snær Agnarsson
Bassi – Jón Svanur Sveinsson
Vinsamlegast athugið
18 ára aldurstakmark er á viðburðinn.