
Árið 1973 kom út meistaraverk Pink Floyd, Dark Side of the Moon og á verkið því afmæli á þessu ári.
Dúndurfréttamenn héldu tvenna frábæra tónleika í Hörpu í vor og var uppselt á þá báða...Nú ætla þeir að endurtaka leikinn í haust og flytja þetta meistaraverk í heild sinni, ásamt mörgum helstu perlum Pink Floyd.
Eitt helsta meistarastykki rokksögunnar Dark Side of the Moon er ein mest selda plata heims (50 milljón eintök) og á heimsmetið yfir veru á Billboard vinsældarlistanum þar sem platan var í samfleytt 741 viku eða meira en 14 ár. Samtals hefur Dark Side of the Moon verið á Billboard listanum í yfir 1500 vikur eða í tæp 30 ár. Í rólegri viku þá selst á milli 8000-9000 eintök af plötunni á viku bara í Bandaríkjunum.