Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Berjadagar Tónlistarhátíð - Rafmagnaðar miðaldir

$
0
0
Mynd

Rafmagnaðar miðaldir 16. ágúst.

Jóhanna Halldórsdóttir, barokksöngkona fléttar hér saman gömlum heimi barokksins og nýjum hljóðheim tölvunnar með hjálp Hilmars Arnar Hilmarssonar, tónskálds. Hún tileinkar tónleikana ,,móðurinni" í sinni víðustu mynd þess orðs en hún meðhöndlar íslensk og ítölsk Maríuvers  á sérstæðan máta á þessum spennandi tónleikum sem eru opnunartónleikar Berjadaga að þessu sinni. Guðný Einarsdóttir mun leika á sembal og orgel til að gera andstæðurnar enn sterkari, en einnig hljómar barokkselló í nokkrum verkum.

Úr höndum blóma 17. ágúst.

Hér koma saman úrvalstónlistarmenn til að flytja frumsamin lög við ljóð Pálma Arnar Guðmundssonar sem er aðalpersónan í kvikmyndinni og bókinni Englar alheimsins eftir Einar Má Guðmundsson. Hljómsveitin, Úr höndum blóma er skipuð þeim Möggu Stínu, Kristni H. Árnasyni, Herði Gason Bra, Ingibjörgu Azimu og Kormáki Geirharðssyni. Saman búa þau til ferðalag með ljóðum Pálma Arnar þar sem harmónikan, básúnan, gítarinn, slagverkið og söngurinn koma við sögu.  Hin mesta kvöldskemmtun í Ólafsfjarðarkirkju fyrir alla ljóðaunnendur.

Tónlistarveisla í boði listamanna helgarinnar 18. ágúst lokakvöld.

Tónlistarveislan er lokakvöld Berjadaga tónlistarhátíðar í Ólafsfirði. Hér fer fjölbreytt og ósvikin söngveisla þar sem listamenn helgarinnar bregða á leik. Þó koma sérstaklega tenórarnir, Hlöðver Sigurðsson og Þorsteinn Freyr Sigurðsson, sem syngja íslenskar og erlenda söngperlur. Þriðji tenórinn verður ekki langt undan sem verður kynnir kvöldsins, Guðmundur Ólafsson, leikari.

Frítt fyrir börn 12 ára og yngri.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696