Rúnar Júlíusson hefði orðið 70 ára á þessu ári og af því tilefni verða haldnir tónleikar honum til heiðurs í Stapa þann 11. apríl og Græna Hattinum 18.apríl
Á tónleikunum verður ferill Hr. Rokks rakinn í máli, myndum og músík undir léttri leiðsögn fjölskyldu Rúnars ásamt einvala liði söngvara og hljóðfæraleikara.
Valdimar Guðmundsson, Jens Ólafsson og Magni Ásgeirsson munu flytja öll bestu lög Rúnars ásamt sérvalinni rokksveit skipaða úrvalssliði tónlistarmanna.
Rúnar var þekktur fyrir söng og bassaleik með mörgum af þekktustu rokkhljómsveitum Íslandssögunnar en hans er einnig minnst fyrir elju, hvatningu til ungra listamanna, húmor og einstaka ljúfmennsku. Á tónleikunum fáum við að heyra hvaðan lögin koma, nokkrar góðar bransasögur og ekki síst söguna á bak við manninn.
Einstök kvöldskemmtun sem væri ferlega svekkjandi að missa af.
Vinsamlegast athugið
18 ára aldurstakmark er á viðburðinn.