Meðlimir Nadja eru þau Aidan Baker og Leah Buckareff en saman búa þau til tilraunakennda, ambient tónlist og nota til þess rafmagnsgítara, trommuheila og aragrúa af hljóðbreytingum. Tónlist þeirra sameinar ýmsa þætti raf- og tilraunakenndra hljóða með hávaða og þunga í bland við melódíska og loftkennda hljóðheima. Þegar þau koma fram umvefur mikill hávaði áhorfendur sem skapar sameinandi, grípandi umhverfi og andrúmsloft.
Aidan Baker kemur svo fram einn síns liðs en skapar þá mótvægi við styrkleika og hávaða Nadja, þar mun hann kanna tilraunakennda ambient og drone eiginleika en á fíngerðari og nánari hátt.
Aidan Baker og Leah Buckareff koma upphaflega frá Toronto í Kanada en eru nú búsett í Berlín í Þýskalandi. Sem tvíeyki hafa þau starfað saman í 10 ár og gefið út fjölmargar plötur hjá útgáfum eins og Alien8 Recordings, Important Records og Hydrahead Records. Þau hafa einnig ferðast mikið og komið fram víða um heiminn.