Sigríður Ósk Kristjánsdóttir mezzósópran og Flemming Viðar Valmundsson harmonikkuleikari halda ljóðatónleika í Hannesarholti með afar spennandi samsetningu klassíska söngsins og harmonikkunnar. Þau komu fyrst fram saman á tónleikum á Menningarnótt 2014. Þau munu flytja klukkutíma langa efnisskrá með fallegum íslenskum og erlendum þjóðlögum ásamt söngvum frá barokktímabilinu.
Sigríður Ósk Kritstjánsdóttir mezzósópran stundaði framhaldsnám í söng við óperudeild Royal College of Music í London hjá Russell Smythe þar sem hún útskrifaðist með Artist Diploma og meistarapróf í tónlist. Áður en Sigríður Ósk hélt út til London lauk hún 8. stigi í söng og píanókennaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík. Kennarar hennar voru Anna Þorgrímsdóttir og Rut Magnússon. Sigríður sækir um þessar mundir tíma hjá Sigríði Ellu Magnúsdóttur. Sigríður Ósk hefur sungið við helstu óperuhúsin í Englandi. Má þar nefna English National Opera í óperunni Jakob Lenz, hún tók þátt í frumflutningi óperunnar Love and Other Demons eftir Peter Eötvös með Glyndebourne Óperunni. Einnig hefur hún sungið með Classical Opera Company, English Touring Opera ofl. Sigríður Ósk hefur sungið ýmis hlutverk í Þýskalandi og á Íslandi. Í Þýskalandi söng hún nýverið með framsæknu óperufélagi Kiez Oper í Berlín í verkinu Insanity. Hún hefur komið fram í helstu tónleikasölum Lundúnaborgar. Má þar nefna Royal Albert Hall, Cadogan Hall, Kings Place, The Handel House, St. George´s við Hannover Square og St Martin-in-the-Fields. Hún kom fram á tónleikum í Cadogan tónleikahöllinni ásamt hinni virtu söngkonu Dame Emma Kirkby. Tónleikunum var útvarpað á bresku útvarpsstöðinni Classical FM. Ásamt því að syngja í óperum kemur Sigríður Ósk reglulega fram í óratoríum og á ljóðatónleikum aðallega á Íslandi og í Englandi. Á Íslandi hefur hún komið fram í ýmsum tónleikaröðum eins og Tíbrá, á Mývatni, Sigurjónssafni, Gljúfrasteini, hjá Íslensku Óperunni, C.C.C.R. og á Myrkum Músíkdögum þar sem hún frumflutti á Íslandi ásamt Ástríði Öldu Sigurðardóttur píanóleikara verkið Adriana Songs eftir Kaiju Saariaho en tónleikunum var útvarpað á RÚV. Hún hefur komið fram með ýmsum kórum s.s Módettukórnum, Óperukórnum ofl.
Framundan eru barokktónleikar með hljómsveit sem leidd er af sellóleikaranum Sigurði Halldórssyni. Á efnisskránni er m.a. kantatan Lucrezia eftir Händel ásamt aríum eftir Purcell, Händel og Hasse. Þá tekur Sigríður Ósk þátt í Listahátíð Reykjavíkur í maí og flytur frumsamið verk eftir Finn Karlsson ásamt kammersveitinni Elektru. Sigríður Ósk syngur hlutverk Waltraute í Valkyrjunum eftir Wagner í óperuhúsinu í Osló í uppfærslu Lidal North.
Tóndæmi, myndir og fleira um Sigríði Ósk er hægt að sjá á www.sigridurosk.com
Flemming Viðar Valmundsson harmónikkuleikari lærði hjá Guðmundi Samúelssyni í Tónlistarskólanum í Grafarvogi og útskrifaðist þaðan haustið 2013 með framhaldspróf. Frá útskrift hefur hann verið virkur þáttakandi í íslensku tónlistarlífi. Má þar nefna tónleika með Fimm í Tangó og kammersveitinni Elektru. Hann spilaði í Ronju með Leikfélagi Mosfellssveitar og í Karítas í Þjóðleikhúsinu.