Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Borealis Band -

$
0
0

Borealis Band

Glæsilegur hópur ungra Vest-norræna listamanna undir stjórn Samma 

Borealis Band er umfangsmikið tónlistarverkefni, sem ætlað er að höfða til ungra íbúa Vest -norrænu höfuðborganna. Að verkefninu standa norrænu húsin í borgunum, Katuaq í Nuuk, Norræna húsið í Þórshöfn og Harpa í Reykjavík. Auk þeirra tekur Norðurbryggja, sem er miðstöð þessara Vestnorrænu landa í Kaupmannahöfn, þátt í verkefninu. Húsin  eru  „norræn“ hús í þrengsta skilningi nema Harpa, en Harpa skipar hér á vissan hátt sérstakt hlutverk með sínum systur-húsum, enda nýjast og stærst. Samstarf hefur verið mikið á milli Hörpu og Færeyja og Grænlands frá því að Harpa opnaði og áhugi er á að nýta enn betur þetta góða samstarf með verkefni af þessu tagi. Norðurbryggja hefur einnig sérstakt hlutverk hér sem miðstöð þessara landa í Kaupmannahöfn. Norræni menningarsjóðurinn (NKF) og Höfðborgarsjóðurinn sem Nuuk, Reykjavik og Þórshöfn standa að eru stærstu styrktaraðilar en Flugfélag Íslands er einnig samstarfsaðili verkefnisins.   SUT sjóðurinn styrkir svo tónleikana í Hörpu.    

Tónlistarstjóri er Samúel Jón Samúelsson og hann hefur valið með húsunum hóp ungra listamanna frá löndunum sem hafa vakið sérstaka athygli. Frá Íslandi taka þátt auk hans Unnsteinn Manúel Stefánsson og Ingibjörg Elsa Turchi, en bæði hafa vakið mikla athygli fyrir tónlistarframgöngu sína.

Tónlistin verður bæði ný og gömul, með nýjum takti, en ætlunin er að taka tónlistararf þjóðanna og flytja hann suður eftir Atlantshafinu með nýjum útsetningum og aðferðum. Einnig verður ný tónlist flutt af hópnum og sungið verður á öllum tungumálunum. Þáttakendur frá grænlensku tónlistarsenunni eru þau  Thelma Lyberth ( sem tekur þátt í Island got talent), Pauline Christiansen og Jonas Nilsson (úr þekktustu rokkhljómsveit Grænlands, Small time giants) en frá Færeyjum koma þau Guðríð Hansdóttir (úr Byrtu), Matthias Kapnas og Ernst Remmel, en tveir þeir síðastnefndu hafa hlotið margvíslegar viðurkenningar í Færeyjum.

Hópurinn verður í æfingabúðum í Þórshöfn í Færeyjum og þar eru fyrstu tónleikarnir þann 24. April. Lokatónleikarnir verða svo í Norðurljósum í Hörpu þann 8. Mai. Verkefnið er styrkt af  SUT (Styrktarsjóði samtaka um byggingu tónlistarhúss og Ruth Hermanns)

Verndari verkefnisins er frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrv. forseti Íslands.



Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Trending Articles


Patama Quotes : Tagalog Inspirational Quotes


Sapos para colorear


Break up Quotes Tagalog Love Quote – Broken Hearted Quotes Tagalog


Long Distance Relationship Tagalog Love Quotes


INUMAN QUOTES


Re:Mutton Pies (lleechef)


Girasoles para colorear


Tagalog Quotes About Crush – Tagalog Love Quotes


OFW quotes : Pinoy Tagalog Quotes


5 Tagalog Relationship Rules


FORECLOSURE OF REAL ESTATE MORTGAGE