Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Jesus Christ Superstar -

$
0
0

Jesus Christ Superstar í Eldborg

Á Skírdag, 2. apríl  flytur margt  af öflugasta tónlistarfólki landsins vinsælustu rokkóperu allra tíma þegar tónleikaútgáfa Jesus Christ Superstar verður færð upp í heild á sviði Eldborgar í Hörpu. Eyþór Ingi er í margra huga fæddur til að syngja hlutverk Jesú ogÞór Breiðfjörð gjörþekkir hlutverk Júdasar eftir að hafa túlkað hann áður, bæði innan lands og utan. Landsmenn eru vanir að upplifa eitthvað stórkostlegt þegar Ragga Gröndal, Björn Jörundur, Magni, Ólafur Egilsson og Jóhann Sigurðarson stíga á svið með meisturum á borð við Friðrik Karlsson, Jón Ólafsson og Eyþór Gunnarsson.

Jesus Christ Superstar kom fyrst út á tvöfaldri hljómplötu árið 1970 þar sem Ian GIllan og Murray Head sungu burðarhlutverkin Jesús og Júdas. Verkið var fyrst sett á svið á Broadway árið 1971 og árið 1973 var gerð kvikmynd sem náði miklum vinsældum. Jesus Christ Superstar hefur verið sett upp reglulega um allan heim undanfarin 40 ár og þar er Ísland engin undantekning. Fyrsta uppsetningin var árið 1973 í Austurbæjarbíói og fjölmargar uppfærslur í atvinnuleikhúsum og hjá áhugamannaleikhópum hafa síðan fylgt í kjölfarið við miklar vinsældir. Nú er komið að tónleikauppfærslu í Eldborg.

Söngvarahópinn skipa:

Eyþór Ingi – Jesús
Þór Breiðfjörð – Júdas
Ragga Gröndal - María Magdalena
Björn Jörundur - Pontíus Pílatus
Jóhann Sigurðarson – Kaíafas
Ólafur Egilsson - Heródes og Annas
Magni Ásgeirsson - Pétur postuli og Símon vandlætari
ásamt Kór Lindakirkju undir stjórn Óskars Einarssonar

Hljómsveit:

Friðrik Karlsson - gítar og tónlistarstjórn
Einar Þór Jóhannsson – gítar
Benedikt Brynleifsson - trommur og slagverk
Eiður Arnarsson – bassi
Eyþór Gunnarsson – hljómborð
Jón Ólafsson – hljómborð
Vignir Þór Stefánsson - hljómborð

Leikstjóri - Selma Björnsdóttir
Lýsing - Magnús Helgi Kristjánsson
Hljóð - Gunnar Sigurbjörnsson



Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Trending Articles


Girasoles para colorear


mayabang Quotes, Torpe Quotes, tanga Quotes


Tagalog Quotes About Crush – Tagalog Love Quotes


OFW quotes : Pinoy Tagalog Quotes


Long Distance Relationship Tagalog Love Quotes


Tagalog Quotes To Move on and More Love Love Love Quotes


5 Tagalog Relationship Rules


Best Crush Tagalog Quotes And Sayings 2017


Re:Mutton Pies (lleechef)


FORECLOSURE OF REAL ESTATE MORTGAGE


Sapos para colorear


tagalog love Quotes – Tiwala Quotes


Break up Quotes Tagalog Love Quote – Broken Hearted Quotes Tagalog


Patama Quotes : Tagalog Inspirational Quotes


Pamatay na Banat and Mga Patama Love Quotes


Tagalog Long Distance Relationship Love Quotes


BARKADA TAGALOG QUOTES


“BAHAY KUBO HUGOT”


Vimeo 10.7.0 by Vimeo.com, Inc.


Vimeo 10.7.1 by Vimeo.com, Inc.