Skálmöld gaf út þriðju hljóðversplötu sína, Með vættum, 31. október síðastliðinn. Platan hefur þegar selst gríðarlega vel og fengið stórkostlega dóma, bæði hér heima sem og erlendis. Strax eftir útgáfu héldu strákarnir utan til tónleikahalds en að því loknu hyggjast þeir fagna meistaraverkinu hér heima með útgáfutónleikum á Græna Hattinum l þann 20 0g 21 mars. Ekkert verður til sparað og óhætt að lofa stórkostlegri upplifun enda mæta Skálmaldar-liðar til leiks þéttari en nokkru sinni fyrr eftir langt tónleikaferðalag.
Forsalan hefst 1.mars.
Vinsamlegast athugið
18 ára aldurstakmark er á viðburðinn.