
Útgáfutónleikar Ljótu hálfvitanna í Gamla bíói
Ljótu hálfvitarnir gáfu út sinn fjórða geisladisk í vor og ber hann nafn sveitarinnar eins og hinir fyrri. Þeir hafa skemmt vítt og breitt um landið í sumar en ljúka sumarvertíðinni með stórtónleikum í Gamla bíói 16. ágúst þar sem útgáfunni verður fagnað formlega.
Á tónleikunum verður nýja platan flutt í heild sinni að viðbættum vel völdum tóndæmum af fyrri skífum. Hálfvitar eiga von á gestum til að aðstoða sig við spileríið, en svo mikil leynd hvílir yfir því máli að þeir vita varla sjálfir hvað stendur til.
Tónleikum Hálfvitanna hefur verið lýst sem blöndu af hljómlist, leikhúsi og uppistandi svo úr verður óborganleg skemmtun sem engan svíkur. Þetta mun vera síðasta tækifærið til að berja þá augum og eyrum þar til „guðmávitahvenær“.
Börn yngri en 18 ára þurfa að koma í fylgd með fullorðnum.