
Kammer-tónlistarhátíð unga fólksins er framsækin tónlistarhátíð sem fetar ótroðnar slóðir í tónlist og tónlistarflutningi, kannar samruna tónlistar við aðrar listgreinar og hvetur til samræðu milli flytjenda, tónskálda og áheyrenda. Aðalmarkmiðið er þó að hlúa að grasrótinni og gefa ungu tónlistarfólki, jafnt flytjendum sem tónskáldum, tækifæri til tjáningar. Í boði verða 12 tónleikar á tímabilinu 7. – 17. ágúst, fjögur málþing, fyrirlestrar og fjöldi námskeiða. Hátíðin fer að mestu fram á Menningarreit Kópavogs og Salnum en auk þess í Hafnarhúsinu Tryggvagötu, Norræna húsinu og bílastæðahúsi Hörpu. Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu hátíðarinnar.
Öryrkjar, eldri borgarar og námsmenn fá miðana á 1500.- kr á afgreiðslustöðum midi.is gegn framvísun skirteina.