Menningar- og listafélagi Hafnafjarðar er það sannur heiður að kynna Þorláksmessutónleika Björgvins Halldórssonar og hljómsveitar. Sérstakir gestir eru hinar frábæru söngkonur Svala Björgvins og Jóhanna Guðrún.
Björgvin Halldórsson er einn af ástsælustu listamönnum landsins og Hafnfirðingur alla leið. Stórglæsilegir stórtónleikar hans “Jólagestir Björgvins”, þar sem hann hefur tekið á móti þúsundum gesta um árabil hafa verið glæsilegt innkall jólana hjá stórum hluta þjóðarinnar síðari ár.
Bæjarbíó bíður uppá aðra stemmningu og annarskonar nánd. Þetta gamla kvikmyndahús í hjarta bæjarins býður svo sannarlega uppá notalega og heimilslega stemmningu. Björgvin, Svala og Jóhanna og hljómsveit munu á Þorláksmessutónleikum þessum flytja mörg af uppáhalds jólalögum margra í bland við lög sem þessir listamenn hafa hljóðritað í gegnum tíðina. Það er því von á notalegri kvöldstund í hjarta Hafnarfjarðar á Þorláksmessukvöld, rétt áður en hátíðin gengur í garð.
Þetta verða “Litlu Jólin” alla leið.
Tónleikarnir hefjast kl 22.00 og húsið opnar kl 21:00
Hljómsveit Björgvins skipa margir af fremstu hljóðfæraleikurum landsins
Þórir Úlfarsson - hljómborð
Jón E Hafsteinsson - gítar
Kristján Grétarsson - gítar
Róbert Þórhallsson - bassi
Jóhann Hjörleifsson - trommur
Nánari upplýsingar veitir Bæjarbíó og netfangið: tonaljos@internet.is