Nordic Events og Smirnoff kynna: Vetrarpartý sem fer fram í Hafnarhúsi Listasafns Reykavíkur þann 13. desember. Á kvöldinu koma fram koma frábærir íslenskir og erlendir tónlistarmenn og plötusnúðar. Aðal númer kvöldsins kemur frá Þýskalandi, Claptone sem slegið hefur í gegn á útvarpstöðvum og á næturklúbbum um allan heim með lögum eins og "Cream", "Wrong" og "No Eyes".
Nánar á http://facebook.com/claptone.official
Eða hlustaðu á https://soundcloud.com/claptone
Ásamt Claptone koma fram húskettirnir í Wildkats frá Skotlandi. Þeir hafa risið hátt í stjörnuheimi danstónlistar og gefið út hjá virtum útgáfufyrirtækjum á borð við Get Physical og Hot Creations. Viðburður þessi er einnig sjósetningarpartý fyrir nýtt útgáfufyrirtæki þeirra sem ber heitið You Are We.
Nánar á https://facebook.com/Wildkatsmusic
Eða hlustaðu á https://soundcloud.com/wildkats
Að auki mun stíga á svið hljómsveitin Sísý Ey sem að hefur risið hátt með taktföstum tónum og seiðandi framkomu. Sömuleiðis munu strákarnir í KSFskipa sess íslenskra tónlistarmanna á kvöldinu. DJ Ghozt býður fólk velkomið í Listasafnið með ljúfum tónum.
Fordrykkur frá Smirnoff er í boði fyrir þá fyrstu sem að mæta. Taktu laugardagskvöldið 13. desember frá og tryggðu þér í miða. #13des
Vinsamlegast athugið
18 ára aldurstakmark er á viðburðinn.