
Ojba Rasta var stofnuð árið 2009. Hún spilar reggí tónlist með döbb ívafi og sækir áhrif í heimstónlist, kvikmyndatónlist, kvæðalög og annað sem til fellur og er eyra næst. Með upplífgandi hljóm sínum höfðar sveitin til mjög fjölbreytts hóps áheyrenda. Ojba Rasta hefur vegnað vel á vinsældarlistum útvarpsstöðva, meðal annars komist í toppsæti vinsældalista Rásar 2 með laginu Baldursbrá, og hefur auk þess hlotið lof fyrir líflega sviðsframkomu. Fyrsta breiðskífa Ojba Rasta, sem margir voru orðnir langeygir eftir, kom út haustið 2012 og er samnefnd hljómsveitinni. Platan ber átta frumsamin lög í fórum sínum og má þar heyra sungið um örlög, ástir og ævintýri nokkurra peða á plánetunni jörð. Plata Ojba Rasta fékk tilnefningar á Íslensku tónlistarverðlaununum 2013 og hlaut einnig verðlaun Kraumlistans. Ojba Rasta eru langt komin með nýja plötu sem mun koma út seinna á árinu. Á tónleikunum verða flutt ný lög og önnur enn þá nýrri með og svo gömul og góð í bland.