Ávarpsorð, frú Vigdís Finnbogadóttir fyrrum Forseti Íslands
Kristinn Sigmundsson bassi og Jónas Ingimundarson píanóleikari flytja íslensk sönglög og óperutónlist
Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari og fyrsti verðlaunahafi Rótarý tónlistarverðalaunanna flytur einleiksverk fyrir píanó
Verðlaunaafhending og tónlistarflutningur verðlaunahafa
Tónlistarsjóður Rótarý
Tilgangur Tónlistarsjóðs Rótarý á Íslandi er að veita ungu tónlistarfólki sem skarað hefur fram úr á einhverju sviði tónlistar viðurkenningu í formi fjárstyrks til frekara náms. Árlega er veitt úr tónlistarsjóði Rótarý á Íslandi.
Úthlutanir frá upphafi:
2014: Lára Bryndís Eggertsdóttir, orgelleikari
2013: Fjölnir Ólafsson, barítónsöngvari, og Matthías Ingiberg Sigurðsson, klarínettuleikari og tónsmiður.
2012: Andri Björn Róbertsson, bassabarítónsöngvari og Hulda Jónsdóttir fiðluleikari.
2011: Sólveig Thoroddsen Jónsdóttir hörpuleikari.
2010: Herdís Anna Jónasdóttir sópran og Jóhann Már Nardeau trompetleikari.
2009: Ögmundur Þór Jóhannesson gítarleikari.
2008: Elfa Rún Kristinsdóttir fiðluleikari og Melkorka Ólafsdóttir flautuleikari.
2007: Bragi Bergþórsson, tenór
2006: Ari Þór Vilhjálmsson, fiðluleikari
2005: Víkingur Heiðar Ólafsson, píanóleikari.