Jólaswing
Stórsveitar Reykjavíkur
Stórsveit Reykjavíkur heldur sitt árlega Jólaswing sunudaginn 30. nóvember kl. 17:00 í Silfurbergi, Hörpu. Að vanda koma fram góðir gestir. Hinir þaulreyndu stórsöngvarar Andrea Gylfadóttir og Ragnar Bjarnason þenja látúnsbarka sína en einnig koma fram hinar ungu og bráðefnilegu systur Una Stef og Erla Stefánsdóttir. Fjölbreyttir og hátíðlegir jólatónleikar með heimilislegri sveiflu. Stjórnandi er Stefán S. Stefánsson.
Tónleikarnir eru hugsaðir fyrir allar kynslóðir áheyrenda og er miðaverði stillt í hóf; kr. 3.500 fyrir fullorðna og aðeins kr. 1.500 fyrir börn. Miðasala harpa.is , midi.is og í miðsölu Hörpu.