Föstudaginn 7. nóvember 2014, kl. 20:00 og kl. 22:00, mun Karlakórinn Fóstbræður halda tónleikana "Til ljóssins og lífsins" í Langholtskirkju. Er hér um að ræða tónleika sem orðnir eru að árvissum viðburði sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. Tónleikarnir sem haldnir eru í tilefni af allra sálnamessu, en það eru forn tímamót þar sem segja má að opnist dyr milli tveggja heima, gefa áheyrendum kærkomið tækifæri til þess að setjast niður og minnast ástvina og þess fallega í lífinu, en lagavalið samanstendur af hugljúfum lögum og sálmum. Við flutning tónlistarinnar er síðan blandað lýsingu og óvenjulegri uppstillingu á kórnum, svo að úr verður stund sem hver sá er að kemur fær ei gleymt. Harpa Arnarsdóttir leikkona mun lesa ljóð á milli laga, um ljósahönnun sér Egill Ingibergsson, organisti er Jón Stefánsson og stjórnandi tónleikana er Árni Harðarsson.
↧