Hugh Cornwell er í hópi bestu lagahöfunda Bretlands og með yfir 30 ára reynslu á sviði. Sem upprunanlegi gítarleikari, söngvari og aðal-lagahöfundur bresku rokksveitarinnar The Stranglers hefur hann átt gríðarlegri velgengni að fagna með útgáfu á 10 breiðskífum og 21 lagi sem hafa náð inn á vinsældarlista og hefur hann þar með komið sjálfum sér inn í tónlistarsál Evrópu og Bandaríkjana með klassíkum rokklögum á borð við Peaches, No More Heroes, Golden Brown, Always The Sun og Duchess. Nýjasta breiðskífa Cornwell's, TOTEM AND TABOO, kom út í júní 2013 og fékk frábæra dóma en platan var tekin upp Í Chicago með hinum goðsagnakennda upptökustjóra Steve Albini.
"UK Punk's Dark Lord" -David Fricke/Rolling Stone
"He sounds more engaged and intense than he has in years" -Classic Rock
"Cornwell provides the goods In Spades" -Vive Le Rock
"His gnarliest record in over 30 years" -Mojo
"Ten songs, ten distinct sentiments, ten atmospheres, all unmistakably Cornwell and really, all pretty damn good" -Your Flesh