Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Bjartmar og Lýðveldið - Tónleikar

$
0
0

1.des n.k. verður íslenska lýðveldið sjötugt og af því tilefni ætlar Bjartmar Guðlaugsson, sem er aðeins yngri en lýðveldið, að halda nokkra tónleika þar sem hann rýnir í þessi 70 ár og skoðar lífið sitt í samhengi við þau á sinn sérstaka og skemmtilega hátt. Textarnir hans fjalla að miklu leyti um persónulega reynslu hans og upplifun. Á tónleikunum segir hann sögurnar á bak við texta laganna sem hann flytur í tímaröð í gegnum lýðveldissöguna. 

Hann röltir m.a. um ímyndað þorp þar sem skrautlegar persónur búa, t.d. þeir Sumarliði og Fúll á móti. Tónleikagestir fá m.a. að kynnast fleirum úr fjölskyldum þeirra, persónum sem hafa dúkkað upp í textum Bjartmars, án þess að fólk hafi áttað sig á tengslum þeirra við þessa merku menn. Svo er aldrei að vita nema hann skimi inn í framtíðina og kynni ný lög af væntanlegri plötu.

Tónleikarnir standa í tvær klukkustundir með einu 15 mínútna hléi. Þetta er skemmtun eins og hún gerist best hjá Bjartmari, gömlu góðu lögin, frábærir textar og yndisleg sögustund.



Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Trending Articles


Girasoles para colorear


mayabang Quotes, Torpe Quotes, tanga Quotes


Tagalog Quotes About Crush – Tagalog Love Quotes


OFW quotes : Pinoy Tagalog Quotes


Long Distance Relationship Tagalog Love Quotes


Tagalog Quotes To Move on and More Love Love Love Quotes


5 Tagalog Relationship Rules


Best Crush Tagalog Quotes And Sayings 2017


Re:Mutton Pies (lleechef)


FORECLOSURE OF REAL ESTATE MORTGAGE


Sapos para colorear


tagalog love Quotes – Tiwala Quotes


Break up Quotes Tagalog Love Quote – Broken Hearted Quotes Tagalog


Patama Quotes : Tagalog Inspirational Quotes


Pamatay na Banat and Mga Patama Love Quotes


Tagalog Long Distance Relationship Love Quotes


BARKADA TAGALOG QUOTES


“BAHAY KUBO HUGOT”


Vimeo 10.7.0 by Vimeo.com, Inc.


Vimeo 10.7.1 by Vimeo.com, Inc.