Jólatónleikar KK & Ellenar
Jólatónleikar KK og Ellenar hafa verið einn af ómissandi og föstu liðunum í aðdraganda jóla. Í mörg ár hafa þau haldið í hefðina og komið saman, ýmist þau tvö eða ásamt hljómsveit sem spilað hefur með þeim. Í ár verða þau á ferð og flugi ásamt 5 manna hljómsveit.
Tónleikarnir hafa verið haldnir víða og þetta árið munu þau koma fram á fjölmörgum stöðum. Þar munu þau ásamt nokkrum af okkar bestu hljóðfæraleikurum flytja mörg okkar ástsælustu jólalög. Einstök aðventustemning skapast á þessum tónleikum þar sem látlausir og hugljúfir tónar einkenna tónlistarflutning þeirra.
Hljómsveitina skipa:
Jón Ólafsson, hljómsveitarstjóri
Andri Ólafsson, bassi
Bryndís Halla Gylfadóttir, selló
Lilja Valdemarsdóttir, franskt horn
Jón Ólafsson, hljómborð
KK, gítar