Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Tónsnillingar morgundagsins - Hulda Jónsdóttir fiðluleikari -

$
0
0

Hulda Jónsdóttir, fædd árið 1991, hóf fiðlunám fjögurra ára gömul hjá Sigríði Helgu Þorsteinsdóttur við Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar.  Síðar nam hún við Tónlistarskólann í Reykjavík hjá Lilju Hjaltadóttur og Guðnýju Guðmundsdóttur. Vorið 2009 lauk hún diplómaprófi frá Listaháskóla Íslands og hefur frá hausti þess árs stundað nám við The Juilliard School í New York þar sem kennari hennar er David Chan. Fyrrum kennarar hennar við Juilliard eru Robert og Nicholas Mann.

Hulda hefur komið fram sem einleikari og með öðrum við ýmis tækifæri á Íslandi sem og í Noregi, Sviss, Bandaríkjunum og Mexíkó. Hún hefur einnig leikið einleik með ýmsum hljómsveitum, m.a. tvívegis með Sinfóníuhljómsveit Íslands. 

Frá hausti 2006 hefur Hulda verið þess heiðurs aðnjótandi að leika á fiðlu smíðaða af Vincenzo Sannino í kringum 1920 og boga smíðuðum af Victor Fetique. Hvoru tveggja hefur hún að láni frá Rachel Elizabeth Barton Foundation í Chicago og hefur einnig hlotið afreksstyrk frá stofnuninni.

Í sumar kom Hulda fram á Podium Festival hátíðinni á Stokkalæk og var einnig nýverið veittur menningarstyrkur American Scandinavian Society í New York.  Í júlí og ágúst tók hún þátt í Pacific Music Festival í borginni Sapporo í Japan. Hátíðin var stofnuð árið 1990 af Leonard Bernstein og er að mestu hugsuð sem hljómsveitarnámskeið og fékk Hulda tækifæri til þess að genga leiðarastöðu innan hljómsveitarinnar. Hátíðin er mjög eftirsótt og þar fá nemendur tækifæri til þess að spila með kennurum námskeiðsins bæði á hljómsveitinni og í kammertónlist, en þeir eru allir leiðarar í helstu sinfóníuhljómsveitum heims. Má þar nefna Berliner Philharmoniker, Metropolitan Opera Orchestra, Cleveland Symphony Orchestra og Staatskapelle Dresden. Í ár endaði hátíðin á stuttri tónleikaferð til Kína þar sem borgirnar Shenyang og Peking voru heimsóttar.

Á efnisskránni: Sónata í G dúr eftir Brahms, Sónata fyrir fiðlu og píanó eftir Debussy, Rapsódía nr. 1 eftir Béla Bartok og Rondo Capriccioso eftir Saint-Saëns


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Trending Articles


Girasoles para colorear


mayabang Quotes, Torpe Quotes, tanga Quotes


Tagalog Quotes About Crush – Tagalog Love Quotes


OFW quotes : Pinoy Tagalog Quotes


Long Distance Relationship Tagalog Love Quotes


Tagalog Quotes To Move on and More Love Love Love Quotes


5 Tagalog Relationship Rules


Best Crush Tagalog Quotes And Sayings 2017


Re:Mutton Pies (lleechef)


FORECLOSURE OF REAL ESTATE MORTGAGE


Sapos para colorear


tagalog love Quotes – Tiwala Quotes


Break up Quotes Tagalog Love Quote – Broken Hearted Quotes Tagalog


Patama Quotes : Tagalog Inspirational Quotes


Pamatay na Banat and Mga Patama Love Quotes


Tagalog Long Distance Relationship Love Quotes


BARKADA TAGALOG QUOTES


“BAHAY KUBO HUGOT”


Vimeo 10.7.0 by Vimeo.com, Inc.


Vimeo 10.7.1 by Vimeo.com, Inc.