Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Johannes Brahm - Ein deutsches Requiem - Tónleikar

Eitt mesta stórvirki kórbókmenntanna!

Söngsveitin Fílharmónía flytur eitt mesta stórvirki kórbókmenntanna, Ein deutsches Requiem, eftir Johannes Brahms á tvennum tónleikum í Langholtskirkju dagana 25. og 26. október kl. 16. Einsöngvarar  eru Kristinn Sigmundsson og Hallveig Rúnarsdóttir. Verkið er flutt í útsetningu fyrir tvö píanó og pákur. Um píanóleik sjá þær  Guðríður St. Sigurðardóttir og Brynhildur Ásgeirsdóttir. Einleikari á  pákur er Eggert Pálsson. 

Ein deutsches Requiem eða Þýska sálumessan er viðamikið kórverk og á tónleikunum telur Fílharmónía áttatíu söngvara. Í hópnum nú eru fjölmargir söngvarar sem eru svo heppnir að hafa tekið þátt í flutningi verksins áður en síðast flutti Söngsveitin Fílharmónía verkið með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Háskólabíói vorið 2008, auk þess sem kórinn fór með verkið í söngför til Wrochlaw í Póllandi sama ár.

Verkið er afar tilkomumikið og meistaralega samið en Brahms notaðist við þýskan texta lútherskrar útgáfu Biblíunnar. Sjálfur vísaði Brahms til tónverksins sem hinnar mannlegu sálumessu vegna þeirrar áherslu sem hann leggur á að hugga eftirlifendur og segja má að tónlistin sé allt í senn, full af von og huggun þó hinn tragíski þráður sé aldrei langt undan. 

Hér er um stórviðburð í íslensku tónlistarlífi að ræða sem enginn unnandi rómantískra meistaraverka má láta framhjá sér fara.



Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Trending Articles


Girasoles para colorear


mayabang Quotes, Torpe Quotes, tanga Quotes


Tagalog Quotes About Crush – Tagalog Love Quotes


OFW quotes : Pinoy Tagalog Quotes


Long Distance Relationship Tagalog Love Quotes


Tropa Quotes


Best Crush Tagalog Quotes And Sayings 2017


“BAHAY KUBO HUGOT”


Vimeo 10.7.0 by Vimeo.com, Inc.


Vimeo 10.7.1 by Vimeo.com, Inc.


Pokemon para colorear


Tagalog Love Quotes – Nagmamahal


Break up Quotes Tagalog Love Quote – Broken Hearted Quotes Tagalog


Patama Quotes : Tagalog Inspirational Quotes


Tagalog Quotes To Move on and More Love Love Love Quotes


5 Tagalog Relationship Rules


Long distances monthsary message tagalog


Re:Mutton Pies (lleechef)


FORECLOSURE OF REAL ESTATE MORTGAGE


Sapos para colorear