Nú hafa nokkrir af þekktustu tónlistarmönnum þjóðarinnar tekið höndum saman og ætla að heiðra The Beatles með tónleikum í Hofi þann 27. mars næstkomandi.
Söngvararnir Björgvin Halldórsson, Matthías Matthíasson, Stefán Jakobsson o.fl. ásamt stórsveit Rokkabillýbandsins munu stíga á svið og spreyta sig á nokkrum af þekktustu perlum The Beatles.