Micha Moor
Þýski ofur plötusnúðurinn Micha Moor spilar á Hendrix, Gullinbrú næstkomandi laugardagskvöld, 13. september. Þar ætlar hann að sprengja húsið með flottustu danstónlist sem völ er á. Síðustu ár hefur Micha komið nokkrum sinnum til Íslands og alltaf spilað fyrir troðfullu húsi.
Það skiptir ekki máli hvert hann mætir, NASA, SJALLINN, BROADWAY, alltaf troðfullt hús og stemningin ólýsanleg. Upphitun frá Óla Geir, Reykjavík 007 og Pink & Purple!
Micha Moor sló fyrst í gegn með laginu sínu "Space", lag sem var spilað af Tiesto, David Guetta, Armand Van Helden, Moby og mörgum öðrum stórum nöfnum. Lagið hans "Learn to fly" ættu flestir að kannast við, lagið var vinsælasta lagið á Íslandi sumarið 2010 og í mörgum öðrum löndum. Þess á milli hefur hann gefið út ótrúlega gott efni, lög eins og "Break my world", "Lifting it higher" og "Keep on rising" sem var eitt heitasta lagið á Íslandi þar síðasta sumar. Þann 22. september kemur svo nýjasti singullinn hans út sem ber nafnið "Kwango" og hefur strax fengið mikla athygli um allan heim eftir að stærstu plötusnúðar heims hafa látið það hljóma á flottustu tónlistarhátíðum sumarsins.