Sage Francis er mörgum íslendingum kunnugur enda er þetta í fjórða skipti sem hann sækir okkur heim.
Frábært rímnaflæði, lífleg sviðsframkoma og auðmjúkir textar einkenna hann helst.
Fimmta hljóðvers plata Sage, Copper Gone, kom út fyrr á árinu og hefur hún hlotið virkilega góða dóma um heim allan.
Fyrsta stopp Sage á evróputúrnum sem spannar 37 staði verður á Húrra þann 4. október næstkomandi.