Cell7 kemur nær alltaf fram ásamt söngkonunni Sunnu, Earmax og Dj Big Gee. En á tónleikunum á Græna Hattinum mun hún einnig hafa hljómsveit sér til liðsinnis. Hana skipa Andri Ólafsson, Steingrímur Teague og Magnús Trygvasen Eliassen. Flest lög plötunnar hafa því verið endurútsett til að henta betur fyrir lifandi tónlistarflutning.
Cell7 út sína fyrstu sólóplötu, CELLF, á síðasta ári. Plötunni var vel tekið meðal gangrýnenda og tónlistaráhugamanna og var á fjölmörgum listum yfir bestu plötur ársins 2013.
Kött Grá Pjé þarf ekki að kynna fyrir neinum og er sá Íslendingur vandfundin sem hefur ekki heyrt lagið Aheybaró sem er örugglega vinsælsta rapplag í sögu Rásar 2.
Viðburðurinn er styrktur af Kraumi tónlistarsjóði.