Tónleikar með Gurunam Singh
Gurunam Singh er möntrutónlistarmaður og rísandi stjarna inna heims jóga- og möntrutónlistar. Í tónlist hans má heyra áhrif úr þjóðlagatónlist, rokki, poppi og klassískri indverskri tónlist en grunnurinn er alltaf möntrutónlist.
Gurunam hefur gefið út fjölda diska sem heyrast víða í jógasölum heimsins. Á tónleikum er Gurunam þekktur fyrir að snerta fólk á djúpan hátt með tónlist sinni og sögum frá viðburðaríku lífi. Það er mikill fengur að fá Gurunam til landsins, tónlist hans og rödd hreyfa við öllum sem á hann hlýða.