Hljómsveitin Low Roar fagnar um þessar mundir útgáfu annarrar skífu sveitarinnar, og ber hún titilinn “0”. Blásið verður til veglegra útgáfuhljómleika vegna útgáfunnar föstudagskvöldið 15. ágúst í Tjarnarbíó. Um upphitun sér Mr. Silla. Miðaverði er stillt í hóf og er einungis 2.000.- krónur.
Low Roar hefur átt miklum meðbyr að fagna að undanförnu og farið tvær vel heppnaðar hljómleikaferðir til Evrópu það sem af er árinu til að fylgja eftir samnefndri skífu frá árinu 2011. Upptökur á annarri hljómplötu sveitarinnar hafa staðið yfir í u.þ.b. tvö ár, en platan "0" leit loks dagsins ljós nú í júlí 2014. Upptökustjórn annaðist Mike Lindsay (Tunng/Cheek Mountain Thief) og um hljóðblöndun sá Andrew Scheps (Red Hot Chili Peppers, Black Sabbath, Johnny Cash o.fl.). Tonequake Records sér um útgáfu plötunnar á heimsvísu en 12 Tónar gefa út á Íslandi. Margir góðir gestir koma fram á plötunni, m.a. Amiina, Kira Kira og Mr. Silla.
Nú í haust heldur Low Roar í fyrstu hljómleikaferð sína um Bandaríkin og Kanada, auk þess sem sveitin mun koma mikið fram í Evrópu með haustinu. Nýja platan hefur nú þegar hlotið mikið lof gagnrýnenda víða um heim en einnig hefur sveitin hlotið frábæra dóma fyrir framkomu á hljómleikum. Nýverið komst sveitin á „Next Big Sound“ lista Billboard, en hann þykir hafa gott forspárgildi um þær sveitir sem eiga eftir að ryðja sér til rúms á alþjóðavettvangi næstu misserin. Útgáfuhljómleikarnir eru því einstakt tækifæri til að sjá Low Roar á hljómleikum í Reykjavík.