Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Fjölskylduhátíðin í Galtalækjarskógi - með Pollapönk - Fullt verð

$
0
0

Það verður heldur betur stuð í Galtalækjarskógi helgina 18. - 20. júlí.

Kvöldvaka verður haldin bæði kvöldin.

Á föstudagskvöldinu eru það þeir Frikki Dór, Eyþór Ingi og Pollapönk sem munu halda uppi stuðinu og á laugardagskvöldinu munu Pollapönk og Ingó halda uppi stuðinu.

Á laugardeginum verður þétt skemmtidagskrá fyrir börnin:

Laugardagur milli klukkan 13.00 og 17.00

Sirkus Íslands, andlitsmálarar, blöðrumenn og ráfarar, Skátaland, Hoppukastali, þrautabraut, klifurturn, Jón Arnór töframaður verður með töfrasýningu, Ávaxtakarfan,  Ævar Vísindamaður gerir tilraunir með börnunum, Veltibíllinn

Innifalið í miðaverði eru aðgangur að öllum skemmtiatriðum og leiktækjum.

Og einnig gisting í 3 nætur á tjaldsvæðinu.  Hátíðin byrjar á föstudagskvöldinu en miðahöfum er velkomið að mæta á svæðið á fimmtudeginum.

Miðaverð:
Fullorðin, 4.990 kr
14 - 18 ára, 1,990 kr
Frítt fyrir yngri en 14 ára.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696