Risa tónleikar Sveppa og Villa
Uppselt var á Risa tónleika Sveppa og Villa í febrúar og vegna fjölda áskorana verða þeir endurteknir sunnudaginn 19. október í Háskólabíó.
Yfir 100 sjónvarpsþættir, 3 gríðarvinsælar kvikmyndir, metsölu- og verðlaunabækur og óteljandi framkomur á allskonar skemmtunum hafa gert Sveppa og Villa rosa vinsæla á Íslandi og þegar þessir strákar geta líka gert fullt af frábærum lögum, spilað og sungið þá er óhjákvæmilegt að þeir haldi Risa tónleika og nú er komið að því í annað sinn.
Í sjónvarpsþáttunum flytja þeir oft frumsamin lög, enda hæg heimatökin því Villi er forsprakki og aðal lagahöfundur rokktríósins 200.000 naglbíta. Lögin á plötunni, fjalla öll um það sem þeir félagar taka sér fyrir hendur. Til dæmis þegar Villa var breytt í rottu, þegar þeir röðuðu dómínókubbum um allt herbergið og þegar Sveppi var veikur og komst ekki út að leika, svo eitthvað sé nefnt.
Á Risa tónleikum Sveppa og Villa koma fram: 7 manna Rokkhljómsveit Sveppa og Villa undir stjórn Vignis Snæs og sérstakur leynigestur verður enn og aftur Gói.
Risa svið, svaka ljósashow, reykur og alvöru hljóðkerfi. Allt frá Hljóð X.