Fenris er samvinnuverkefni ungs áhugafólks og fagfólks í sviðslistum frá sex Norðurlöndum.
Undir handleiðslu fagfólks hafa 80 ungmenni á aldrinum 14-20 ára búið til sýningu sem fjallar um einstaklingshyggju, tilraunir til samvinnu í heimi samkeppninnar og tilveru unglinga í dag. Unga fólkið valdi sjálft þetta þema vegna þess hve þeim finnst varhugaverð einstaklingshyggjan ríkjandi í samtímanum. Allir eiga að ná árangri og skara fram úr, en það er kalt á toppnum og einmannalegt. Getum við fundið sameiginlegan flöt, þar sem við getum unnið saman og notið félagsskaps hvors annars - þvert á landamæri, tungumál og menningu?
Í sýningunni er söngur, tónlist, dans, stultur og sviðsmynd samansett úr litlum kössum. Þáttakendur koma frá Leikklúbbnum Sögu sem er starfandi á Akureyri, Tana Kulturskolení Noregi, leikfélaginu Glottií Færeyjum, danskólanum Hurja Piruettií Finnlandi, leikhópnum Ragnarock frá Danmörku.