Sönghópurinn Olga er nýr og ferskur hópur sem hefur aðsetur í Hollandi - alþjóðlegar rætur leyna sér ekki. Olga var stofnuð árið 2012 í Tónlistarháskólanum í Utrecht. Við syngjum allt án undirleiks og efnisskrá okkar spannar fimm aldir, allt frá endurreisninni til rakarakvartetta og frá þjóðlögum til sönglaga. Við leggjum upp með að færa tónlistina nær áheyrendum í leikrænni tjáningu og einlægum söng með vandaðri og metnaðarfullri tónlistarlegri túlkun.
Fyrir okkur er Olga garður tónlistar sem við ræktum í hvert skipti sem við höldum tónleika. Við höfum sterka tengingu við Ísland og viljum gera það að reglulegum viðburði að halda tónleika þar. Þannig höldum við áfram að rækta það sem við sáum.
Sönghópurinn Olga ætlar að koma aftur til Íslands í sumar! Við elskum að skemmta okkur og öðrum með skemmtilegum og einlægum söng sem hittir beint í hjartastað. Við viljum taka þátt í að efla enn frekar það mikla tónlistarlíf sem kraumar í Íslenskri menningu.
Frítt fyrir börn á grunnskólaaldri.