Grísk tónagleði í Hörpu 9. maí kl. 20.00
Grísk tónagleði tekur völdin í Hörpu 9. maí kl. 20.00 í tónleikum í tilefni af Evrópudeginum. Caput hópurinn ríður á vaðið fyrir hlé með mögnuðum verkum eftir gríska tónskáldið Nikos Skalkottas sem var eitt fremsta tónskáld Evrópu á fyrri hluta 20. aldar. Hinn heimsþekkti ástralski píanóleikari, Geoffrey Douglas Madge, ásamt hinni ástsælu sópransöngkonu Þóru Einarsdóttur koma fram með Caput hópnum.
Eftir hlé stígur gríska hljómsveitin Pringipessa Orchestra á svið og leikur lög eftir þjóðlagaskáldið Vasílis Tsitsánis sem almennt er talinn eiga mestan þátt í þróun grískrar tónlistarhefðar sem kallast rembétiko. Pringipessa Orchestra samanstendur af heimsþekktu tónlistarfólki sem er vel þekkt fyrir að halda á lofti tónlistarstílunum rembétiko og laikó.