Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Stóns heiðurstónleikar -

$
0
0
Heiðurssveitin Stóns er fyrir löngu orðin þekkt nafn í íslensku tónlistarlífi. Stóns var stofnuð á síðasta áratug með það fyrir augum að gera tónlist risarokkaranna í Rolling Stones hátt undir höfði. Sveitin hlaut þá um leið verðskuldaða athygli fyrir færni og líflega sviðsframkomu og þótti koma tónlistinni einstaklega vel til skila. Fremstan meðal jafningja þarf að telja söngspíruna Björn Stefánsson sem þó er þekktastur fyrir að berja húðir með rokksveitinni Mínus. Mörgum kom því á óvart þegar hann stimplaði sig inn sem söngvara en að auki þykir Björn líkjast sjálfum Mick Jagger á hans yngri árum, bæði í útliti og töktum. Tónleikar Stóns eru því annað og meira en hefðbundnir heiðurstónleikar og haft hefur verið á orði að upplifunin sé líkt því að ferðast aftur í tímann.
Eftir þónokkuð langan dvala rís Stóns nú upp úr öskunni og hyggst blása til risatónleika bæði sunnan og norðan heiða. Laugardaginn 4. október verður rokkað í Háskólabíói og sléttri viku síðar, laugardaginn 11. október, í Hofiá Akureyri. Ekkert verður til sparað til að gera upplifunina sem glæsilegasta og mega gestir því eiga von á góðu. Miðaverð er 5.990 krónur og hefst miðasala á www.menningarhus.is stundvíslega á hádegi fimmtudaginn 1. maí.
Stóns skipa: Björn Stefánsson (Mínus) – Söngur Bjarni Magnús Sigurðarsson (Mínus) – Gítar Birgir Ísleifur Gunnarsson (Motion Boys) – Píanó Karl Daði Lúðvíksson (Lights on the Highway) – Bassi Frosti Runólfsson (Legend) – Trommur Að auki koma að tónleikunum fjöldi þekktra listamanna, tónlistarfólk sem sameinast í brenndandi áhuga á Rolling Stones, efni þeirra og sögu.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Trending Articles


Vimeo 10.7.1 by Vimeo.com, Inc.


UPDATE SC IDOL: TWO BECOME ONE


KASAMBAHAY BILL IN THE HOUSE


Girasoles para colorear


Presence Quotes – Positive Quotes


EASY COME, EASY GO


Love with Heart Breaking Quotes


Re:Mutton Pies (lleechef)


Ka longiing longsem kaba skhem bad kaba khlain ka pynlong kein ia ka...


Vimeo 10.7.0 by Vimeo.com, Inc.


FORECLOSURE OF REAL ESTATE MORTGAGE


FORTUITOUS EVENT


Pokemon para colorear


Sapos para colorear


Smile Quotes


Letting Go Quotes


Love Song lyrics that marks your Heart


RE: Mutton Pies (frankie241)


Hato lada ym dei namar ka jingpyrshah jong U JJM Nichols Roy (Bah Joy) ngin...


Long Distance Relationship Tagalog Love Quotes