
Megas syngur Passíusálmana
Í apríl býðst einstakt tækifæri til að heyra Megas flytja lög sín við alla Passíusálma Hallgríms Péturssonar í glænýjum útsetningum. Með Megasi verður einvalalið tónlistarfólks úr ýmsum áttum; Moses Hightower, CAPUT-hópurinn, Magga Stína, stór rokksveit, strengjasveit og þrír kórar.
Megas lauk við að semja lög við alla Passíusálmana árið 1973 en þessar lagasmíðar hafa ekki farið hátt og aðeins hluti þeirra hefur heyrst opinberlega áður. Nú verða þau í fyrsta sinn flutt í heild sinni, á 400 ára fæðingarafmæli Hallgríms Péturssonar. Sálmalög Megasar spanna allt frá fögrum ballöðum yfir í argasta rokk með viðkomu í blús og kántrí og heyrast nú meðal annars í nýjum útsetningum Þórðar Magnússonar fyrir Caput-hópinn.
Sálmarnir eru fimmtíu talsins svo ekki duga minna en að flytja þá í þremur hlutum til að koma þeim öllum til skila, með tónleikum 3. apríl, 10. apríl og 18. apríl og ólíkum flytjendum í hvert sinn. Tónleikarnir verða haldnir í Grafarvogskirkju.
Auk Megasar taka þátt í flutningnum sem áður segir söngkonan Magga Stína, hljómsveitirnar Moses Hightower, Caput-hópurinn og Píslarsveitin og kórarnir Söngfjelagið og Vox Populiásamt stúlknakór. Hilmar Örn Agnarsson er listrænn stjórnandi tónleikanna. Fastur punktur í gegnum tónleikaröðina verða þau Megas og Magga Stína, þar sem sú síðarnefnda bregður sér í hlutverk Jesú, en hljómsveitirnar þrjár og kórarnir leggja þeim lið, hvert á sínum tónleikum.
Píslarsaga Krists sem rakin er í Passíusálmunum tekur á sig alveg nýja mynd í meðförum Megasar sem þekkir sálmana út og inn og velur hverjum sálmi einstakan blæ út frá efnistökum og ljóðmáli.
Aðeins verða einir tónleikar með hverjum hluta sálmanna og hægt er að kaupa miða á staka tónleika eða passa á verkið í heild sinni.
Ekki missa af þessu einstaka tækifæri til að heyra stórmerkan hluta af lagasmíðum Megasari í flutningi einvala liðs tónlistarmanna!
Fimmtudagurinn 3. apríl kl. 20:00, Passíusálmar 1–17 // CAPUT, stúlknakór og Píslarsveitin
Byrjað verður á fáguðu nótunum, með glænýjum útsetningum á sálmunum fyrir strengi, blásturshljóðfæri og hrynsveit eftir Þórð Magnússon. Söngvarar eru þau Megas og Magga Stína og kór skipaður ungum stúlkum leggur þeim lið. Caput-hópurinn leikur ásamt völdum rokkurum. Guðni Franzson stjórnar.
Fimmtudagurinn 10. apríl kl. 20:00, Passíusálmar 18–33 // Moses Hightower, Vox Populi
Tónleikar unga fólksins. Fluttir verða sálmar 18 til 33, sem hafa fæstir heyrst opinberlega áður. Megas og Magga Stína syngja ásamt kórnum Vox Populi, sem er ungmennakór starfandi í Grafarvogskirkju undir stjórn Hilmars Arnar. Hljómsveitin Moses Hightower leikur með og setur sinn sérstaka svip á sálmana.
Föstudagurinn langi, 18. apríl kl. 15:00, sálmar 34–50 // Píslarsveitin, Söngfjelagið
Rokkið tekur völdin í lokakaflanum. Síðustu sautján sálmana syngja sem fyrr þau Megas og Magga Stína og nú er það Píslarsveitin, stór rokkhljómsveit skipuð einvala liði tónlistarmanna ásamt strengjakvartett, sem slær botninn í píslarsöguna. Söngfjelagið, 60 manna kór sem Hilmar Örn stjórnar, syngur nýjar útsetningar valinna tónsetjara svo búast má við afar kraftmiklum og fjölbreyttum hátíðartónleikum á föstudaginn langa.