
Lúðrasveitin Svanur og Diddú munu sameina krafta sína og spila saman nokkur óperuverk í Norðurljósasal Hörpu þann 6. apríl kl 16:00.
Á efnisskránni er að finna m.a. forleik að Töfraflautunni og aríu næturdrottningarinnar einnig úr Töfraflautunni.
Um Diddú:
Sigrún Hjálmtýsdóttir (Diddú) hóf feril sinn á sviði dægurtónlistar. Síðar stundaði hún sígilt söngnám við Guildhall School of Music and Drama í London og hélt síðan til Ítalíu í framhaldsnám. Diddú hefur tekið þátt í margvíslegum uppfærslum og sýningum jafnt á sviði sem og í kvikmyndum, sem ber fjölbreyttum hæfileikum hennar vitni. Frumraun sína á óperusviði þreytti hún í hlutverki dúkkunar, Olympiu, í Ævintýrum Hoffmanns í Þjóðleikhúsinu.
Diddú hefur marg oft komið fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands sem og erlendum hljómsveitum víða um Evrópu og í Bandaríkjunum. Hún hefur hljóðritað fjóra geisladiska við undirleik Sinfóníunnar en alls hefur hún sungið inn á rúmlega 70 hljómplötur. Árið 2001 söng hún ásamt José Carreras á eftirminnilegum tónleikum í Laugardagshöll og 2005 hlotnaðist hennni sá heiður að stíga á stokk með Placido Domingo á tónleikum hans í Egilshöll. Henni var veitt Hin íslenska fálkaorða árið 1995.
Um Lúðrasveitina Svan:
Lúðrasveitin Svanur var stofnuð árið 1930 af áhugamönnum. Í dag eru starfandi í Svaninum um 40 félagar á aldinum 15-60 ára. Markmið Lúðrasveitarinnar Svans er að vera í fararbroddi íslenskra lúðrasveita, vera með öfluga og lifandi lúðrasveit sem er í senn góð viðbót í menningarflóru borgarinnar og skemmtilegur félagsskapur fyrir fólk á öllum aldri.