
Áfram Mið-Ísland - nú í Hofi
Uppistandshópurinn Mið-Ísland er kominn aftur með glænýja sýningu. Sýning þeirra Mið-Ísland í Kjallaranum sló eftirminnilega í gegn á síðasta ári en áður en yfir lauk var hún sýnd yfir 40 sinnum, bæði í Reykjavík og í Hofi á Akureyri, og voru gestir tæplega 10 þúsund talsins.
Í nýju sýningunni í Hofi munu Mið-Íslendingar kitla hláturtaugar Norðanmanna eins og þeim einum er lagið. Umfjöllunarefnin á þessari tveggja klukkustunda löngu sýningu eru fjölbreytt: fjallað er um ást Íslendinga á sjálfum sér, barnauppeldi, misskilning í fjölskylduboðum, mataræði, fyrirmyndir og margt fleira.
Athygli skal vakin á því að DóriDNA getur því miður ekki verið með okkur á sýningunni í Hofi og mun fóstbróðirinn Þorsteinn Guðmundsson fylla hans skarð - ekki amaleg innáskipting það!
Aðrir meðlimir hópsins - Ari Eldjárn, Bergur Ebbi, Björn Bragi og Jóhann Alfreð - verða að sjálfsögðu á sínum stað.
Um fyrri sýningar Mið-Ísland hópsins:
"Yndislegur hópur og meira að segja mestu fýlupkar hljóta að gera hlegið að Mið-Íslandi."
- Vera Sölvadóttir
"Þetta grín náði svo í gegn hjá mér, og að mér heyrðist öðrum í salnum, að ég grét í orðsins fyllstu merkingu úr hlátri"
- Mikael Torfason, úr fimm stjörnu dómi í Fréttatímanum.
"Þetta grín Mið-Íslands lengið lífið um einhverjar vikur ef ekki mánuði. Ábyrgist þriggja daga harðsperrur í maga á eftir."
- Fanney Birna Jónsdóttir. - Viðskiptaritstjóri Fréttablaðsins.
"Djúpir djókar í bland við nastí yfirborðsgrín. Mið-Ísland eru með puttann á púlsinum og þetta er púlsinn á þér. Tussufínt stöff!"
- Dr. Gunni
„Frábær uppistandssýning búin til úr fersku íslensku hráefni! Þú munt hlæja af þér rassinn.“
- Hrefna Rósa Sætran
"Fagmannlegt, fyndið og frumlegt. Mjög "erlendis."
- Logi Bergmann
"Eins og það eru nú margir íslendingar sem fá mann til að skammast sín fyrir að vera íslendingur þá er Mið-ísland hópurinn ekki þar á meðal. Ég skeit *#?!#*$* úr rassgatinu á mér ég hló svo mikið. Amen"
- Andri Freyr Viðarsson, útvarpsmaður.
„Mið-Ísland uppistand er frábær næring…fyrir líkama og sál!“
- Pétur Jóhann Sigfússon
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland að ódauðleika!