
6. mars ætla Samtökin '78 & Amnesty International á Íslandi, ásamt nemum í tómstunda- og félagsmálafræði að standa fyrir styrktartónleikum.
Á tónleikunum koma fram Hinsegin kórinn, Sigga Beinteins & Stjórnin, Páll Óskar, Sykur og Retro Stefson.
Tónleikarnir hefjast klukkan 20:00 í Hörpu og munu standa í um tvo tíma.
Miðaverð verður 2000 kr og rennur allur ágóði óskiptur til hinsegin fólks í Úganda.
Meiri upplýsingar berast á allra næstu dögum.
Mannréttindi hinsegin fólks í Úganda eru fótumtroðin og nú á dögunum var frumvarp þar í landi samþykkt sem kveður á um lífstíðarfangelsi við samkynhneigð í landinu. Með því hefur rótgróið hatur og mismunum gagnvart þeim sem eru eða teljast hinsegin, fest í sessi.
Samtökin ´78 og Íslandsdeild Amnesty International styðja úgönsk grasrótarsamtök hinsegin fólks í mannréttindabaráttu þeirra fyrir réttindum sínum.
Eftir að Amnesty bauð lesbísku baráttukonunni Köshu til Íslands í fyrra ákváðu Samtökin ´78 að hefja samstarf við baráttusystkini í Úganda.
Tilgangur styrktartónleikana er að vekja athygli Íslendinga á stöðu hinsegin fólks í Úganda sem og að afla fjár fyrir grasrót hinsegin fólks í Úganda, svo þau geti hratt og örugglega unnið gegn hatri og fordómum, með það að markmiði að opnað augu samlanda sinna fyrir hvaða afleiðingar það mun hafa í för með sér.