Clik here to view.

Það er ATP Iceland mikill heiður að segja frá því að Neil Young & Crazy Horse koma fram í fyrsta sinn á Íslandi í Laugardalshöll þann 7. júlí 2014, á mánudeginum fyrir ATP Iceland-hátíðina sem fer fram á Ásbrú 10.-12. júlí.
"Sumir segja að maður eigi aldrei að gefast upp á draumum sínum. Við erum búin að reyna þetta síðan að ATP hóf göngu sína fyrir 15 árum og nú loksins rætast æskudraumar mínir þar sem við getum nú staðfest að Neil Young & Crazy Horse spila á Íslandi í sumar." -Barry Hogan (stofnandi ATP)
Neil Young & Crazy Horse eru Neil Young, Billy Talbot, Ralph Molina og Poncho Sampredo.
Það eru tvenns konar miðar í boði á Neil Young & Crazy Horse í Laugardalshöllinni: Svæði A, sem er nær sviðinu, og svæði B, sem er fjær sviðinu. Allir miðar eru í stæði - engin sæti.
Miðaverð:
A svæði: 17.900 kr.
B svæði: 14.900 kr.
Við bjóðum einnig upp á vikupassa sem mun gilda á Neil Young & Crazy Horse og ATP Iceland-hátíðina 10.-12. júlí (miðahafar á helgarpössum á ATP Iceland munu fá tölvupóst frá miðasöluaðila sínum með leiðbeiningum um hvernig þeir geta uppfært helgarpassann sinn á ATP Iceland í vikupassa sem gildir líka á tónleika Neil Young & Crazy Horse 7. júlí).
Vikupassar á bæði ATP Iceland og Neil Young & Crazy Horse
Vikupassi felur í sér:
Neil Young & Crazy Horse tónleika 7. júlí
ATP Iceland viðburð 8. júlí
ATP Iceland viðburð 9. júlí
ATP Iceland 2014 helgarpassa 10.-12. júlí (Portishead, Interpol, Kurt Vile & Violators, Swans, Fuck Buttons + margir fleiri)
Verð:
ATP vikupassi
(ATP Iceland + Neil Young & Crazy Horse Svæði A): 31.900 kr.
ATP vikupassi
(ATP Iceland + Neil Young & Crazy Horse Svæði B): 28.900 kr.