Clik here to view.

Anna Mjöll Ólafsdóttir er ein eftirsóttasta djasssöngkonan í Los Angeles um þessar mundir og er eina fastráðna söngkonan í glæsilegasta djassklúbbi Los Angeles borgar "Herb Alpert's Vibrato" sem er í Bel Air hverfinu í L.A. þar sem hún syngur jafnan fyrir troðfullu húsi með Pat Senatore tríóinu. Anna Mjöll ferðaðist og söng með spænsku stórstjörnunni, söngvaranum Julio Iglesias á tónleikaferð um hans um víða veröld í nokkur ár.
Hún hefur gefið út tvo djassgeisladiska, "Shadow Of Your Smile" og "Christmas Jazzmas" þar sem á má finna alþekkt, sígild lög í einstökum útsetningum föður hennar, Ólafs Gauks, leikin af nokkrum af fremstu tónlistarmönnum Los Angeles borgar. Og nú er væntanlegur nýr geisladiskur hljóðritaður í klúbbnum Vibrato, "Anna Mjöll - Live At Vibrato".
Auk þess að koma fram sem djasssöngkona, samdi Anna Mjöll nokkur lög í kvikmyndina "For Your Consideration" sem Christopher Guest leikstýrði.
Anna Mjöll hélt síðast tónleika á Café Rosenberg í febrúar, 2013 og komust þá færri að en vildu.
Ekki gafst tîmi fyrir aukatónleika þá, vegna anna vestanhafs og sama verður upp á teningnum núna, aðeins einir tónleikar 19.apríl, 2014.
Efnisskráin er fjölbreytt en Anna Mjöll mun m.a. flytja lög sem þekkt eru í flutningi Ellu Fitzgerald, Astrud Gilberto, Söruh Vaughan, Billie Holiday, Marilyn Monroe og fleiri slíkra. Líka er Anna Mjöll þekkt fyrir að segja einstakar skemmtisögur á milli atriða, sem jafnan vekja mikla lukku!
Hljómsveitina skipa auk hennar: þórir Baldursson, Gunnar Hrafnsson, Jóhann Hjörleifsson og Reynir Sigurðsson.