
Skonrokk - 80´s Glysrokkveisla Aldarinnar
SkonRokk hópurinn hefur algjörlega slegið í gegn og fest sig í sessi tónleikaunnenda sem ein magnaðasta rokksveit landsins. Nú verður 80´áratugunum beggja vegna gerð góð skil.
Magni, Eyþór Ingi, Biggi Haralds (Gildrunni), og Pétur „Jesú“ Guðmundssonásamt hinni mögnuðu hljómsveit Tyrkja Guddu, munu flytja öll gæsahúðarlögin frá þessu magnaða tónlistartímabili í rokksögunni.
Tyrka Guddu skipa: Birgir Nielsen trommur, Einar Þór Jóhannsson gítar, Ingimundur Benjamín Óskarsson bassi, Stefán Gunnlaugsson hljómborð, Sigurgeir Sigmundsson gítar.
Hægt er að finna SkonRokk hópinn á Fésbókinni undir Tyrkja Gudda og allar hugmyndir að lagavali eru vel þegnar. Taktu þátt í að gera frábæran viðburð enn betri. Kannski vinnur þú miða á tónleikanna?