
Úlfur úlfur, Emmsjé Gauti, Larry Brd (Hlynur og Heimir Skyttumeðlimir) og Kött Grá Pjé ætla sjóða saman töfrandi tóna laugardaginn 1. febrúar á Gamla Gauknum. Allur ágóði tónleikanna mun renna óskiptur til Barnaspítala Hringsins og tónlistamenn ásamt öllum öðrum sem leggja hönd á plóg gefa vinnu sína. Þetta er samvinnuverkefni Háskóla Íslands sem nemendur í viðskiptafræðideild skipuleggja.
Atburður sem enginn má láta framhjá sér fara!!!
Barnaspítali Hringsins hefur reynst veikum börnum og foreldrum þeirra nauðsynlegur griðarstaður í mörg ár, en eins og flestir vita eru tæki á Landspítalanum úr sér gengin og þarfnast mörg hver endurnýjunar.
Láttu gott af þér leiða og skemmtu þér í leiðinni!