Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Jeff Beck - Tónleikar

$
0
0
Mynd

Einn þekktasti rokkgítarleikari sögunnar, Jeff Beck, heldur tónleika í Vodafonehöllinni 27. júní næstkomandi. Þetta er í fyrsta sinn sem þessi heimsþekkta gítargoðsögn spilar á Íslandi, og er sannkallaður hvalreki fyrir tónlistaráhugafólk.

Tónleikarnir eru hluti herferðar Endgame, samtaka sem helga sig baráttu gegn útbreiðslu AIDS, malaríu og berkla í heiminum.

Beck er enskur, fæddur 1944 og hefur m.a. leikið með The Yardbirds og heimskunnum tónlistarmönnum á borð við Mick Jagger, Tinu Turner og Stevie Wonder. Í úttekt tímaritsins Rolling Stone árið 2011 yfir bestu gítarleikara allra tíma varð Beck í fimmta sæti og sagður einn áhrifamesti gítarleikari rokksögunnar. Hann hefur sjö sinnum hlotið Grammy-verðlaun fyrir gítarleik sinn og í tvígang verið tekinn inn í Frægðarhöll rokksins, Rock and Roll Hall of Fame, annars vegar sem liðsmaður The Yardbirds og hins vegar sem sólólistamaður.

Jeff kemur hingað ásamt hljómsveit sinni sem er skipuð einvala liði hljóðfæraleikara. Meðal þeirra sem leika með Beck í Vodafonehöllinni er Rhonda Smith, bassaleikari Prince.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Trending Articles


Girasoles para colorear


Sapos para colorear


tagalog love Quotes – Tiwala Quotes


Break up Quotes Tagalog Love Quote – Broken Hearted Quotes Tagalog


Patama Quotes : Tagalog Inspirational Quotes


Tagalog Quotes To Move on and More Love Love Love Quotes


5 Tagalog Relationship Rules


Best Crush Tagalog Quotes And Sayings 2017


Re:Mutton Pies (lleechef)


Vimeo 10.7.1 by Vimeo.com, Inc.


Vimeo 10.7.0 by Vimeo.com, Inc.


mayabang Quotes, Torpe Quotes, tanga Quotes


Tagalog Quotes About Crush – Tagalog Love Quotes


OFW quotes : Pinoy Tagalog Quotes


Long Distance Relationship Tagalog Love Quotes


Tagalog Long Distance Relationship Love Quotes


BARKADA TAGALOG QUOTES


“BAHAY KUBO HUGOT”


FORECLOSURE OF REAL ESTATE MORTGAGE


Pokemon para colorear