
Bruce Kulick fyrrverandi gítarleikari KISS kemur til landsins nú í lok janúar og spilar með alíslenska KISS-tribute bandinu MEIK. Tónleikarnir verða á veitingahúsinu SPOT í Kópavogi föstudaginn 31. janúar nk.
Bruce Kulick gekk til liðs við ofurhljómsveitina KISS árið 1984 skömmu eftir útgáfu plötunnar Animalize og var hann meðlimur KISS allt til ársins 1996 þegar upprunalegir meðlimir KISS komu saman aftur.
Meðlimir MEIK hafa starfað árum saman í íslensku tónlistarlífi og má þar nefna hljómsveitir eins og Todmobile, Skálmöld, Sálina, Á móti sól, Stjórnina, Dúndurfréttir.
Tónleikarnir með MEIK og Bruce Kulick verða á SPOT í Kópavogi föstudaginn 31. janúar og má búast við að miðar seljist hratt enda verða einungis þessir einu tónleikar í boði.
Einnig verða í boði einungis 50 miðar á svokallað Meet & Greet sem hefst kl. 18 á SPOT sama dag. Þar gefst áhugasömum kostur á að hitta og spjalla við Bruce Kulick, fá afhenta áritaða ljósmynd, fá tekna mynd af sér með kappanum, jafnvel kaupa einhvern annan varning, mæta með KISS plötur til áritunar ofl. Innifalinn í miðaverði á Meet & Greet er miði á tónleikana síðar um kvöldið.