
Tónlistarhátíðin All Tomorrow’s Parties verður haldin í annað skiptið helgina 10.-12. júlí 2014. Hátíðin fer fram á Ásbrú, gömlu NATO herstöðinni, í Reykjanesbæ. Tónlistardagskráin fer fram í Atlantic Studios og Andrews Theater á Ásbrú. Á hátíðinni verður einnig popppunktur, bingó-keppni, fótboltamót, kvikmyndasýningar, plötusnúðar og margt fleira.
Dagskrá:
Fimmtudagur 10. júlí
Væntanlegt
Föstudagur 11. júlí
Portishead
Laugardagur 12. júlí
Interpol
Verð fyrir þriggja daga passa er 18.500 kr.
Verð fyrir dagspassa er 12.900 kr.
Einnig er hægt að kaupa miða á hátíðina sem fela í sér rútuferðir frá BSÍ í Reykjavík með Reykjavík Excursions. Þessar rútur leggja af stað kl. 17, 18, 19 og 20 og fara aftur til Reykjavíkur kl. 00, 01, 02 og 03. Bæði eru fáanlegir þriggja daga passar með rútuferðum sem kosta 20.800 kr. og dagspassar með rútuferðum sem kosta 15.400 kr.