Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Megumi Masaki, píano - Myrkir músíkdagar 2014

Image may be NSFW.
Clik here to view.
Mynd

Myrkir músikdagar verða haldnir í Reykjavík fimmtudaginn 30. janúar til sunnudagsins 2. febrúar 2014 og nú í fyrsta sinn í samstarfi við Reykjavík Center for Visual Music (RCVM) og spænsku abstrakt-kvikmyndahátíðina Punto y Raya.

Myrkir músíkdagar hafa verið einn mikilvægasti vettvangur framsækinnar nútímatónlistar á Íslandi allt frá stofnun hátíðarinnar árið 1980, en Tónskáldafélag Íslands stendur fyrir hátíðinni. Á Myrkum músíkdögum er boðið upp á úrval spennandi og framandi tónlistarviðburða sem endurspegla margbreytileika tónlistar í okkar samtíma. Áhersla er lögð  á frumsköpun og tilraunastarfsemi og er frumflutningur tónverka áberandi á dagskránni. Hátíðin fer fram í tónleikahúsinu Hörpu nú þriðja árið í röð. Sinfóníuhljómsveit Íslands opnar Myrka músíkdaga með glæsilegum tónleikum í Eldborg þar sem flutt verða ný og framsækin íslensk verk, en Sinfónían hefur verið fastur liður á opnunarhátíð hátíðarinnar frá upphafi.

Í ár verða Myrkir músíkdagar í fyrsta sinn haldnir í samstarfi við nýja hátíð, Reykjavík Visual Music – Punto y Raya Festival, sem mun fara fram samtímis í Hörpu og Listasafni Reykjavíkur. Boðið verður upp á spennandi dagskrá þar sem fléttaðar verða saman samtímatónlist og sjónrænar listir. Á opnunarhátíð Reykjavík Visual Music og - Punto y Raya verða frumflutt tvö ný verk þar sem tónskáldin Anna Þorvaldsdóttir og Hugi Guðmundsson sameina krafta sína við sjónlistamennina Sigurð Guðjónsson og Bret Battey.

Auk Sinfóníuhljómsveitarinnar kemur fram fjöldi flytjenda á hátíðinni svo sem Kammersveit Reykjavíkur og CAPUT. Á meðal verka eru Saxófónkonsert eftir Áskel Másson og portrett-tónleikar Páls Ragnar Pálssonar tónskálds, sem margir kannast við sem fyrrum gítarleikara hljómsveitarinnar Maus.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Trending Articles


Girasoles para colorear


Tagalog Quotes About Crush – Tagalog Love Quotes


OFW quotes : Pinoy Tagalog Quotes


Pamatay na Banat and Mga Patama Love Quotes


5 Tagalog Relationship Rules


INUMAN QUOTES


Re:Mutton Pies (lleechef)


FORECLOSURE OF REAL ESTATE MORTGAGE