
Samanborið við annan strengjakvartett Mortons Feldman, tónverk í einum kafla sem tekur rétt um 6 klukkustundir, líður hinn draumkenndi, 80 mínútna langi Piano and String Quartet hjá eins og augnablik. Óhætt er að lofa eftirminnilegum miðnæturtónum þegar lengsti dagur ársins fer í hönd.
Flytjendur Bryndís Halla Gylfadóttir, Sigrún Eðvaldsdóttir, Una Sveinbjarnardóttir, Víkingur Heiðar Ólafsson, Þórunn Ósk Marinósdóttir.
Fram að klukkutímamarkinu hugsar maður um form, en eftir að því er náð snýst allt um kvarða. Form er auðvelt: skipting hluta í einingar. En kvarði, hann er annað mál.
-Morton Feldman