
Íslendingar hafa löngum ræktað sönghefðina á mannamótum og í rútubílum. Hannesarholt vill leggja sitt af mörkum til að hlúa að sönghefðinni og bjóða uppá samsöng fyrir alla, unga sem aldna, Íslendinga sem aðflutta, undir stjórn kunnáttufólks. Næsta söngstund verður haldin sunnudaginn 8.desember kl.16, og mun Þórunn Björnsdóttir, kórstjóri leiða sönginn í um klukkustund, Ástvaldur Traustason spilar undir á píanó og Jón Rafnsson á bassa. Textar munu birtast á skjá. Þar sem jólin eru á næsta leiti verða jólalögin að sjálfsögðu í aðalhlutverki.
Borðstofan verður opin á fyrstu hæð hússins, og hægt verður að fá sér kaffi og meðlæti á undan eða eftir.